top of page

Einkenni ME

Helstu einkenni ME eru yfirþyrmandi þreyta, oft í kjölfar andlegrar eða líkamlegrar áreynslu; svefntruflanir, verkir, minnistruflanir, viðkvæmni gagnvart ljósi, snertingu og hljóði; erfiðleikar við að standa lengi og stundum jafnvægistruflanir, óregla á líkamshita og líkamsþyngd; flensulík einkenni sem vara að minnsta kosti í sex mánuði hjá fullorðnum eða þrjá mánuðu hjá börnum.

Listi yfir einkenni

 

Dr. Katrina Berne, sem sérhæfir sig í ME útbjó þennan lista sem

sjúklingar geta notað til hliðsjónar þegar þeir meta ástand sitt.

Hægt er að fylla hann út á nokkurra mánaða fresti og jafnvel fara

með til læknisins.

 

Notaðu skalann 1-10 yfir hve alvarleg einkennin eru, 1 er vægast og 10 er verst.

 

Þreyta sem versnar við andlegt eða líkamlegt álag
Virkni hefur minnkað a.m.k. um helming síðan fyrir veikindi
Endurtekin flensulík einkenni
Særindi í hálsi
Hæsi
Bólgnir eitlar í hálsi eða handakrikum
Mæði við litla áreynslu eða enga
Advarpa oft
Skjálfti eða titringur
Ofnæmi í nefi (nýlegt eða hefur versnað)
Hósti
Nætursviti
Vægur hiti
Oft kalt
Oft heitt
Kaldir útlimir
Lágur líkamshiti
Lágur blóðþrýstingur (undir 110/70)
Þungur hjartsláttur
Þurrkur í augum eða munni
Aukinn þorsti
Einkenni versna við breytingu á hitastigi
Einkenni versna við flugferðir
Einkenni versna við álag

bottom of page