top of page

Góður fræðslufundur


Nú á mánudaginn (13. apríl 2015) hélt ME félag Íslands sinn fyrsta fræðslufund.

Fyrst var litið aðeins á félagið sjálft, út á hvað það gengur, hvað hefur gerst hingað til og að hvaða stærri bandalögum félagið tilheyrir:

  • Stofnun félagsins 12. mars 2011

  • Aðili að Öryrkjabandalag Íslands

  • Aðili að Europian ME Alliance

  • Aðili að Nordic ME Network

Svo var farið yfir fimm fyrirlestra frá "Invest in ME" ráðstefnunni í frá því í fyrra. Þeir voru miklu fleiri og allir mjög áhugaverðir. Við ræddum þessa á mánudaginn:

  • Rannsókn um orsakir ME

  • Þolpróf sem sýnir fram á PENE (post exertional neuroimmune exhaustion)

  • Hallapróf sem sýnir fram á frávik í taugakerfi og blóðþrýstingi

  • Þarmaflóran sem virðist hafa mikið að segja

  • Stytt útgáfa af ICC greiningunni á ME (umræða um greiningar)

Að lokum voru kynntar þrjár mikilvægar rannsóknir um ME sem eru að hefjast um þessar mundir:

  • Örverur í meltingarvegi

  • END CFS/ME (hvorki meira né minna)

  • Rituximab rannsókn í Noregi (lyf)

Það var mjög gaman að hittast og spjalla og við viljum gjarnan hafa fleiri svona fundi/hittinga.


Fréttir
bottom of page