top of page

Útgáfuhóf


Í gær var haldið upp á útgáfu bókarinnar Virkniaðlögun sem ME félag Íslands gefur út. Félagsmönnum og öðrum var boðið upp á veitingar á Hótel Reykjavik Natura og færði stjórn félagsins nokkrum aðilum úr heilbrigðis-geiranum eintak af bókinni að gjöf.

Félagið er sérlega stolt af útgáfu þessarar bókar. Þar sem enn hefur ekki fundist lækning við ME er ánægjulegt að geta bent á úrræði sem þó hjálpar mörgum sjúklingum við að bæta lífsgæði sín. Höfundurinn kynnir hér sína útfærslu á aðferð sem margir fræðimenn mæla með, t.d. höfundar greiningarviðmiða sem notuð eru fyrir ME. Virkniaðlögun hjálpar fólki að stjórna daglegu lífi svo það örmagnist síður og nái þannig að lifa fyllra og meira gefandi lífi.

Lesa má meira um bókina hér.


Fréttir
bottom of page