top of page

ME á læknadögum 2020


Það urðu aldeilis tímamót í sögu ME á Íslandi þegar málþing um ME var haldið á Læknadögum í Hörpunni nú í vikunni.

Málþingið var mjög vel sótt og gestir voru mjög áhugasamir um það sem fram kom.

Auk þeirra íslensku lækna sem að því stóðu hélt Dr. James Bananiuk erindi en hann hélt einmitt fyrirlestur fyrir félaga ME félags Íslands á mánudaginn.

Þetta eru alveg sérstaklega ánægjulegar fréttir fyrir ME sjúklinga og þá sem unnið hafa að málefum þeirra undanfarin ár. Þeir læknar sem að þinginu stóðu eiga miklar þakkir skildar fyrir að vekja með þessum hætti athygli kollega sinna á þessum sjúklingahópi.

Dagskrá málþingsins:

Málþing á Læknadögum um ME (síþreytu)

Fimmtudagur 23. janúar 2020 kl 9 – 12

09:00-12:00 ME- myalgic encephalomyelitis (síþreyta) – erum við einhverju nær?

Fundarstjóri: Friðbjörn Sigurðsson, læknir

09:00-09:05 Ávarp. Alma Möller, landlæknir

09:05-09:20 Inngangur. Kristín Sigurðardóttir, læknir, Þróunarmiðstöð rannsóknarverkefna

09:20-09:35 Sjúkratilfelli: G. Birna Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, Heilsustofnun NLFÍ

09:35-10:00 Skilgreining og mismunagreiningar á ME. Höfum við klínískar leiðbeiningar að styðjast við? Dr. James Baraniuk, prófessor, Georg Washington háskóla, BNA.

10:00-10:10 Skiptir þarmaflóran máli? Sigurjón Vilbergsson, Læknastöðinni Glæsibæ og Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

10:10-10:40 Kaffihlé

10:40 11.00 Morbus Akureyriensis 70 ára: Sigurður Guðmundsson, læknir Landspítala, fv. landlæknir og forseti heilbrigðisvísindasviðs HÍ

11:00 -11:25 Nýjungar í meðferð ME. Dr. James Baraniuk, prófessor, Georg Washington háskóla, BNA

11:20-11:30 Skráning á síþreytu á Íslandi: Friðbjörn Sigurðsson, læknir Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri

11:30-11:40 Er möguleiki á rannsóknum á síþreytu á Íslandi? Tekla Hrund Karlsdóttir, læknir, Þróunarmiðstöð rannsóknarverkefna

11:40-12:00 Hver á að sinna sjúklingum með síþreytu á Íslandi?

Pallborðsumræða


 
 
 
Fréttir

ME félag Íslands

Sigtún 42

105 Reykjavík

 

Sími: 620 2011

mefelag@gmail.com

Viltu styrkja ME félagið?
 

Kennitala: 650311-2480

Bankareikningur: 133-15-1371

 

ME félagið er almannaheillafélag

ME félag Íslands er aðili að:

 

              Öryrkjabandalagi Íslands

             

              European ME Alliance

             

              Nordic ME Network

Félagið á samfélagsmiðlum:

Skrifstofa félagsins
er í Sigtúni 42 í
Mannréttindahúsinu

Opnunartími:
Eftir samkomulagi.

Viðtalstíma er hægt að bóka í síma 792 3828 eða í tölvupósti á netfangið: 
mefelag@gmail.com

  • Facebook
  • YouTube
  • Instagram
bottom of page