top of page

ME á tímum Covid-19


Covid-19 er nú heimsfaraldur og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst Evrópu miðju faraldursins. Á Íslandi ríkir samkomubann og fólk er beðið um að vera ekki í fjölmenni og halda að lágmarki tveggja metra fjarlægð frá öðrum.

En hvað um þau okkar sem eru með ME og þau sem búa með eða sjá um einstaklinga með ME?

Margir ME sjúklingar eru nú þegar mikið heima við og fara lítið út en samt þurfa þeir að sýna enn meiri varkárni núna. Þegar litið er til nýjustu upplýsinga kemur í ljós hætta á því að afleiðingar Covid 19 smitunar séu alvarlegar og langvarandi hjá ME sjúklingum.

Dr Nigel Speigt ráðleggur ME sjúklingum að vera kinnroðalaust „mjög varkárir“ og Dr. Charles Shepherd ráðleggur ME sjúklingum að „gera auknar ráðstafanir til að vernda heilsu sína og halda sig í fjarri öðru fólki“.

Þeir ráðleggja fólki með undirliggjandi sjúkdóma að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum stjórnvalda - sem hér á landi eru á https://covid.is

Ef þú eða einhver sem þú þekkir hefur ME, vinsamlegast haltu áfram að ástunda gott hreinlæti, haltu fjarlægð eins og mælt er með og dragðu úr óþarfa ferðalögum.

Dr. Charles Shepherd ráðleggur:

  • Haltu öllum snertiflötum í umhverfi þínu eins hreinum og þú mögulega getur.

  • Þvoðu hendur og úlnliði vandlega eftir að hafa snert óhreina eða mögulega mengaða fleti til dæmis hurðarhúna og slökkvara.

  • Ekki snerta andlit þitt nema með nýþvegnum höndum.

  • Forðastu að umgangast þá sem sýna einkenni um smit.

  • Haltu hæfilegri fjarlægð frá öðrum, þar með talið fólki sem þú þekkir.

  • Ef þú þekkir einhvern með ME og býrð ekki með þeim skaltu sýna stuðning þinn með því að tengjast í gegnum samfélagsmiðla eða hringja frekar en að heimsækja. Mikilvægast er að hafa samband við 1700 ef þú finnur fyrir einkennum.

Upplýsingarnar fyrir þessa grein eru að hluta byggðar á vefsíðunum Emerge Australia og

ME Association UK. Báðar síðurnar uppfæra reglulega upplýsingar um Covid-19.


Fréttir
bottom of page