top of page

3. desember er alþjóðadagur fatlaðs fólks

Fjólublár er litur alþjóðlegrar réttindabaráttu fatlaðs fólks og hefur ÖBÍ hvatt ráðuneyti og stofnanir til að varpa fjólublárri birtu út í umhverfið frá 2. desember til 5. desember 2022 og leggja þannig mikilvægri baráttu lið.

Markmiðið er upplýst samfélag – ekki aðeins þessa daga heldur alla daga, samfélag þar sem fatlað fólk nýtur verðskuldaðrar virðingar og sjálfsagðra réttinda.

Við hvetjum ME fatlað fólk til að taka þátt og varpa fjólublárri birtu út í umhverfið – hvort sem það er með því að lýsa upp húsnæði, klæðast fjólubláu eða birta fjólubláa fleti og myndir á samfélagsmiðlum. Í tilefni dagsins birtir ME félag Íslands táknræna mynd af manneskju með óhlaðna rafhlöðu en það er ástand sem er lýsandi fyrir ME sjúkdóminn.


Fréttir
bottom of page