Alþjóðlegur dagur ME veikra
Í ár leggur ME félagið áherslu á að meiri þekking er hjá vísindasamfélaginu um sjúkdómsgreiningu og meðferðir við ME sjúkdómnum, eftir að bandarískir ME læknar og vísindamenn gáfu út í ágúst 2021 - endubættar leiðbeiningar um greiningu og meðferðir á ME sjúkdómnum. Einnig gáfu bresk heilbrigðisyfirvöld út leiðbeiningar í október 2021 um greiningu og meðferðir á sjúkdómnum (NICE leiðbeiningar) Báðar leiðbeiningarnar eru aðgengilegar hér á heimsíðunni okkar.
Við hvetjum þá heilbrigðisstarfsmenn sem sinna fólki sem mögulega gæti verið með ME til að kynna sér vel nýju leiðbeiningarnar, jafnframt hvetjum við ME veika til að sýna sínum læknum og ummönnunaraðilum þessar nýju leiðbeiningar.
Ný Íslensk fræðslumynd um ME verður frumsýnd á RÚV þann 17. maí. Myndin heitir ME sjúkdómurinn: Úti á jaðri. Nafnið vísar í að ME sjúklingar eru jaðarsettir í heilbrigðiskerfinu og í öllu þjóðfélaginu.
Kommentare