top of page

Hvað getur þú sagt mér um þreytu?

Rannsókn á reynsluheimi fólks með ME/síþreytu og Langt Covid Hvernig lýsir heilaþoka sér eða örmögnun og mæði? Langveikt fólk sem lifir með ME/síþreytu og núna síðast það sem lifir með Langt-Covid verður fyrir enn annarri gerð af þreytu en heilbrigt fólk sem felst í örmögnun eftir áreynslu (post exertional malaise, PEM þreyta). Kallað er eftir fólki af öllum kynjum 18 ára og eldri sem er með ME/síþreytu eða Langt Covid og finnur fyrir einkennum PEM þreytu til þess að taka þátt í viðtalsrannsókn um þreytu. Viðtalið verður um klukkutíma langt eða tvö 30 mínútna viðtöl. Þátttakendur velja þann stað sem viðtalið fer fram á en rannsakandi getur komið á heimili þeirra. Fyllsta trúnaðar er gætt og öll

persónueinkenni verða afmáð í niðurstöðum rannsóknar og dulnefni notuð. Þörf þátttakenda á hvíld verður alltaf í fyrirrúmi í viðtalsferlinu. Alltaf er hægt að hætta við þátttöku í rannsókninni. Siðanefnd háskólanna um vísindarannsókn hefur veitt rannsókninni jákvæða umsögn. Nánar má lesa um einkenni PEM þreytu á vef ME félagsins: mefelag.is Ef áhugi vaknar á að taka þátt eða ef það eru einhverjar spurningar hafið samband við rannsakanda: nannahlin@hi.is eða í síma 8241684. Rannsakandi: Nanna Hlín Halldórsdóttir er nýdoktor í heimspeki við Háskóla Íslands. „Hlustað á þreytu“ er nýdoktorsverkefni hennar styrkt af Rannsóknarsjóði Íslands. Nanna er sjálf með væga gerð af ME/síþreytu og hefur tekið þátt í störfum ME félags Íslands.


Comments


Fréttir

ME félag Íslands

Pósthólf 600

222 Hafnarfjörður

 

Sími: 620-2011

mefelag@gmail.com

Viltu styrkja ME félagið?
 

Kennitala: 650311-2480

Bankareikningur: 133-15-1371

 

ME félagið er almannaheillafélag

ME félag Íslands er aðili að:

 

              Öryrkjabandalagi Íslands

             

              European ME Alliance

             

              Nordic ME Network

Félagið á samfélagsmiðlum:

  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube
  • Instagram

Skrifstofa félagsins
er í Sigtúni 42 í
húsi Öryrkjabandalasins

Opnunartímar:
Þriðjud. og miðvikud.
kl. 12:00 - 15:0
0
Föstud. kl. 9:30 - 12:00

bottom of page