top of page

18. mar. 2011 - 10:00  Dagfríður Ósk Gunnarsdóttir

ME félag Íslands stofnað

 

Laugadaginn 12. mars sl. var stofnfundur ME félags Íslands haldinn í sal Kringlukráarinnar í Reykjavík. ME er skammstöfun á Myalgic Encephalomyelitis en „myalgic“ stendur fyrir vöðvaverki og „encephalomyelitis“ fyrir bólgur í heila eða mænu. ME er upprunalegt heiti á sjúkdómi sem stundum hefur verið nefndur síþreyta en þar sem sú nafngift þykir draga úr alvarleika sjúkdómsins hefur verið ákveðið að leggja það nafn niður.

 

Á stofnfundardegi voru 26 skráðir félagar en stofnfélagaskrá verður opin til 26. mars nk. Markmiðið með stofnun félagsins er að vekja athygli á sjúkdómnum og kynna hann almenningi en jafnframt að skapa sameiginlegan vettvang til að vinna að hagsmunamálum félagsmanna og aðstoða þá í baráttunni fyrir bættri líðan. Jafnframt mun félagið leggja kapp á að afla nýjustu upplýsinga úr læknisfræðilegum rannsóknum á sjúkdómnum og koma þeim á framfæri sem víðast.

 

Í fyrstu stjórn félagsins var ég kjörin formaður og með mér í stjórn voru kjörin Jóhanna Sól Haraldsdóttir, Benedikt Birgisson, Anna Dóra Valsdóttir og Eyrún Sigrúnardóttir. Í varastjórn voru kjörnar Ingibjörg Hlíðkvist Ingadóttir og Nanna Guðrún Yngvadóttir.

 

Dæja_edited.png

Dagfríður Ósk Gunnarsdóttir:

Ég er 19 ára Grundarfjarðarmær sem hefur virkilega

gaman af lífinu og öllum þeim duttlungum sem því fylgja.

 

Félagið er opið öllum þeim sem láta sér þetta málefni varða en þeir sem vilja gerast stofnfélagar eða kynna sér þetta málefni nánar geta haft samband á tölvupóstfangið mefelag@gmail.com eða tengst facebook síðu félagsins, ME félag Íslands.

 

Það er alveg á hreinu að þessi félagastofnun er stórt skref í rétta átt í baráttu okkar ME sjúklinganna og er ég sannfærð um að það séu bjartari tímar framundan!

Þessi fréttatilkynning birtist í Pressunni 18. mars 2011 í tilefni af stofnun félagsins

http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Dagfridi/me-felag-islands-stofnad

bottom of page