Jólakaffi ME félagsins
Jólakaffihittingur ME félagsins verður föstudaginn
9. desember klukkan 16:00 í Gamla kaffihúsinu, Drafnarfelli 18 í efra Breiðholti. Kaffihúsið er við hliðina á pólsku búðinni í verslunarmiðstöð sem er skáhallt á móti Fellaskóla.
Njótum þess að eiga
samverustund á aðventunni
með öðrum ME sjúklingum
og aðstandendum.