top of page

Fræðslufundur og jólakaffi


Í gær stóð ME félag Íslands fyrir fræðslufundi fyrir félagsmenn og aðra áhugasama. Haldin voru þrjú erindi og ekki er annað hægt að segja en að þau hafi verið hvert öðru áhugaverðara. Fundinum var streymt beint.

Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir sagði frá helstu niðurstöðum ME rannsókna. Það hefur orðið sprenging í þessum rannsóknum undanfarin ár og því er ómetanlegt að fá lækni til að færa okkur helstu fréttir.

Sylgja Dögg Sigurðardóttir líffræðingur ræddi hvernig skaðleg efni og mygla geta haft áhrif á heilsuna. Ákveðinn hópur ME sjúklinga glímir við fjölefnaóþol og/eða mygluóþol. Sylgja er án efa einn helsti sérfræðingur landsins í þessum efnum og var ljóst að margir kunnu vel að meta þennan fróðleik og ráðleggingar.

Dr. Lilja Kjalarsdóttir lífefnafræðingur hélt erindi um starfsemi og mikilvægi hvatbera (orkukorn fruma). Athygli margra vísindamanna sem rannsaka ME hefur einmitt beinst að hvatberum og hugsanlegri truflun á starfssemi þeirra hjá ME sjúklingum.

Að lokum var boðið upp á jólakaffi og spjall.


Fréttir

ME félag Íslands

Pósthólf 600

222 Hafnarfjörður

 

Sími: 620-2011

mefelag@gmail.com

Viltu styrkja ME félagið?
 

Kennitala: 650311-2480

Bankareikningur: 133-15-1371

 

ME félagið er almannaheillafélag

ME félag Íslands er aðili að:

 

              Öryrkjabandalagi Íslands

             

              European ME Alliance

             

              Nordic ME Network

Félagið á samfélagsmiðlum:

  • Facebook
  • Twitter
  • YouTube
  • Instagram

Skrifstofa félagsins
er í Sigtúni 42 í
húsi Öryrkjabandalasins

Opnunartímar:
Þriðjud. og miðvikud.
kl. 12:00 - 15:0
0
Föstud. kl. 9:30 - 12:00

bottom of page